Vottun hf.

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Fréttir
Fréttir af starfsemi Vottunar hf.

VSB fær umhverfisvottun

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

VSB verkfræðistofa hefur hlotið umhverfisvottun samkvæmt staðlinum ÍST ISO 14001.
Á myndinni eru þau Pétur Helgason frá Vottun og Ásta Ósk Hlöðversdóttir og Hjörtur Sigurðsson
frá VSB, við afhendigu vottorðsins, því til staðfestingar.

 

Jafnlaunavottun Hölds ehf.

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Höldur ehf, sem m.a. rekur Bílaleigu Akureyrar, hlaut vottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum
ÍST 85:2012 þann 23. maí 2023 hjá Vottun hf. Markmiðið með vottuninni er að tryggja
launajafnrétti og jafna möguleika kynjanna til starfa og strafsþróunnar hjá fyrirtækinu. 
Á myndinni taka þau Bergþór Karlsson, Sigurbjörg Sigurðardóttir og Jón Gestur Ólafsson við
vottorðinu úr höndum Péturs Helgasonar frá Vottun hf því til staðfestingar.

 

Stjórnunarkerfi Sementsverksmiðjunnar um heilbrigði og öryggi á vinnustað fær vottun

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Sementsverksmiðjan hefur fengið stjórnunarkerfið sitt um heilbrigði og öryggi á vinnustað vottað samkvæmt alþjóðlega staðlinum ÍST ISO 45001:2018. Umfang starfseminnar er innflutningur, sala og dreifing á sementi frá Akranesi. Hjá fyrirtækinu starfa fjórir starfsmenn. Heilbrigðis- og öryggistjórnunarkerfinu ISO 45001 er ætlað að koma í veg fyrir slys meðal starfsmanna og verktaka, sem starfa á vegum fyrirtækisins, og skila þeim heilum heim. Sementsverksmiðjan hefur starfrækt vottað gæðastjórnunarkerfi samkvæmt ÍST ISO 9001 síðan í mars 1998.

Á myndinni tekur Gunnar H. Sigurðusson framkvæmdastjóri ásamt starfsmönnum Sementsverksmiðjunnar ehf við ISO 45001 vottorðinu úr höndum Péturs Helgasonar úttektarstjóra hjá Vottun.

 

Öryggis- og umhverfisstjórnunarkerfi Strendings fær vottun

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Strendingur ehf. verkfræðiþjónusta í Hafnarfirði fékk öryggis- og umhverfisstjórnunarkerfið sitt vottað samkvæmt alþjóðlegu stöðlunum ISO 45001:2018 og  ISO 14001:2015 þann 18. september 2020.  Strendingur var stofnaður 26. janúar 1995 og fæst við hönnun, ráðgjafaþjónustu á byggingarsviði, stjórnun verkefna, rannsóknir o.fl. Hjá fyrirtækinu starfa 13 starfsmenn. Öryggistjórnunarkerfinu ISO 45001 er ætlað að koma í veg fyrir slys meðal starfsmanna, viðskiptavina og almennings með markvissum áhættugreiningum, fyrirbyggjandi aðgerðum og vöktun. Með umhverfisstjórnunarkerfinu er unnið að því að draga úr umhverfisáhrifum bæði í eigin starfsemi og í hönnun lausna fyrir viðskiptavini. Strendingur er búinn að vera með vottað gæðastjórnunarkerfi samkvæmt ISO 9001 síðan 2010. Sjá nánar strendingur.is

Á myndinni má sjá Pétur Helgason úttektarstjóra hjá Vottun hf. afhenda Sigurði Guðmundssyni framkvæmdastjóra vottorðin. Auk þeirra eru á myndinni f.v. Gunnar H. Guðmundsson ráðgjafi frá 7.is, Hálfdan Þ. Markússon, Pétur V. Guðnason, Ásmundur Sigvaldason, Katrín Ágústsdóttir, Finnur M. Erlendsson, Jónas Ásbjörnsson, Karen Gylfadóttir, Arnar Hannes Halldórsson, S. Hjörtur Guðjónsson og Jóhann Kristinsson, starfsmenn Strendings.

 



Vottuð starfsemi

 

 

Upplýsingar um handhafa
gildra vottorða og umfang
vottana hjá Vottun hf.
fást á skrifstofu félagsins.


Vottun hf. —    NMÍ, Keldnaholti    —    112 Reykjavík    —    sími: 570-7200    —    fax: 522-9111    —    tp: vottun@vottunhf.is    —    kt: 590691-1439